færi
nafnorð hvorugkyn
1
heppilegar aðstæður, tækifæri, möguleiki
fá færi á að <útskýra málið>
fá færi á <honum>
gefa (ekki) færi á sér
gefa <honum> færi á að <hugsa málið betur>
komast í færi við <ráðherrann>
leita færis að <hitta hana>
setja/sitja sig ekki úr færi að <nefna þetta>
nota hvert tækifæri
sæta færi(s) að <tala við hana>
2
vegalengd skots, næg skotvegalengd
hún kastaði boltanum af 5 metra færi
skjóta <gæsina> á færi
skjóta gæsina úr ákveðinni fjarlægð
3
lína með öngli (önglum) á til að veiða fisk sem sökkt er lóðrétt niður
4
færð (til göngu eða á vegum)
það er mikill snjór og þungt færi
<slíkt starf> er ekki á <allra> færi
ekki getur hver sem er unnið slíkt starf
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
færi
færið
þolfall
færi
færið
þágufall
færi
færinu
eignarfall
færis
færisins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
færi
færin
þolfall
færi
færin
þágufall
færum
færunum
eignarfall
færa
færanna