Yrða

færast

sagnorð miðmynd
1
flytjast til, breyta um stað
áin hefur færst aðeins sunnar
raddirnar færðust stöðugt nær
2
koma yfir (e-n/e-ð)
breitt bros færðist yfir andlit hennar
aldurinn færist yfir <hana>
hún verður eldri, eldist
3
færast undan <þessu>
koma sér undan þessu, frábiðja sér þetta
hann færðist undan því að stjórna fundinum
færast mikið í fang
fara í mikla framkvæmd, leggja í stórt verkefni
honum hættir til að færast of mikið í fang
<eldgosið> færist í aukana
það eykst, verður meira
inflúensan hefur færst í aukana að undanförnu
<endurvinnsla> færist í vöxt
hún eykst, verður almennari, algengari, útbreiddari
það færist í vöxt að hótel bjóði gestum upp á skoðunarferðir
→ sjá: færa sagnorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
færist
færðist
önnur persóna
færist
færðist
þriðja persóna
færist
færðist
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
færist
færðist
önnur persóna
færist
færðist
þriðja persóna
færist
færðist
nafnháttur
færast
sagnbót
færst
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
færistu
færðistu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
færistu
færðistu
Ópersónuleg notkun
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
færist
færðist
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
færist
færðist