fótfesta
nafnorð kvenkyn fót-festa
öruggur staður það sem hægt er að standa á fætinum án þess að renna
missa fótfestuna
1
renna af þeim stað sem maður hefur tyllt fæti
fjallgöngumaðurinn missti fótfestuna og féll nokkra metra
2
yfirfærð merking
vera án stefnu og markmiðs, hafa ekki lengur neitt að styðja sig við
hún missti fótfestuna í lífinu eftir að móðir hennar lést
<þessi sjónarmið> hafa náð fótfestu <í landinu>
skoðunin hefur náð að skjóta rótum og breiðast út
erlendar glæpaklíkur hafa náð fótfestu í borginni
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
fótfesta
fótfestan
þolfall
fótfestu
fótfestuna
þágufall
fótfestu
fótfestunni
eignarfall
fótfestu
fótfestunnar