Yrða

fjöður

nafnorð kvenkyn
1
létt og ílöng eining í fjaðraham fugls, gerð af af holu röri með þéttum hárröðum til beggja hliða
2
gormur t.d. í dýnu eða klukku
3
stálblað í fjöðrunarbúnaði bifreiðar
búið er að skipta um fjaðrir í bílnum
draga fjöður yfir <yfirsjónir hans>
dylja mistök hans
fjöður í hattinn
e-ð sem fyllir mann stolti, upphefð
með verðlaununum fékk rithöfundurinn enn eina fjöður í hattinn
skreyta sig með stolnum fjöðrum
eigna sér verk annarra
vera/verða fjöðrum fenginn
verða mjög glaður
Samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
  • eins og fjaðrir fyrir vindi
  • eins og fjöður
  • fjöðrum fenginn
  • fjöður aftan hægra
  • fjöður aftan undir
  • fjöður aftan úr
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
fjöður
fjöðrin
þolfall
fjöður
fjöðrina
þágufall
fjöður
fjöðrinni
eignarfall
fjaðrar
fjaðrarinnar