fjölskylda
nafnorð kvenkyn fjöl-skylda
1
foreldrar (eða foreldri) og börn (eða barn) þeirra
fjölskyldan fór í leikhúsið um helgina
2
þrír eða fleiri ættliðir, stórfjölskylda
öll fjölskyldan hittist í afmælinu
Orðasvið og samstæður
fjölskylda / fjölskylduhagir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
fjölskylda
fjölskyldan
þolfall
fjölskyldu
fjölskylduna
þágufall
fjölskyldu
fjölskyldunni
eignarfall
fjölskyldu
fjölskyldunnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
fjölskyldur
fjölskyldurnar
þolfall
fjölskyldur
fjölskyldurnar
þágufall
fjölskyldum
fjölskyldunum
eignarfall
fjölskyldna
fjölskyldnanna