forskot
nafnorð hvorugkyn for-skot
sá munur sem keppandi hefur fram yfir keppinauta sína þegar hann fær t.d. að byrja fyrr eða hefur tekist að komast fram úr þeim
liðið náði tveggja marka forskoti á fyrstu tíu mínútum leiksins
hafa forskot á <keppinaut sinn>
missa forskotið
liðið missti forskotið niður í síðari hálfleik
taka forskot á sæluna
njóta sælu nú þegar
þau tóku forskot á sæluna og fóru í brúðkaupsferð áður en þau giftu sig
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
forskot
- þjófstart
- , þjófstarta
- , samkeppnisforskot
Samstæður
Orðasambönd
- hafa forskot
- missa forskotið
- ná forskoti
- taka forskot
- taka forskot á sæluna
- taka út forskot á sæluna
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
forskot
forskotið
þolfall
forskot
forskotið
þágufall
forskoti
forskotinu
eignarfall
forskots
forskotsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
forskot
forskotin
þolfall
forskot
forskotin
þágufall
forskotum
forskotunum
eignarfall
forskota
forskotanna