fylling
nafnorð kvenkyn fyll-ing
1
tannfylling
2
mauk eða annað sem sett er í kjöt, kökur o.s.frv.
fylling í kalkúna
3
ýmiskonar efni sem notað er innan í mjúk leikföng, bólstruð húsgögn o.s.frv.
nú er sett fylling í bangsann
4
blekhylki í blekpenna eða kúlupenna
tunglið er í fyllingu
tunglið er fullt
<barnið fæddist> í fyllingu tímans
þegar tíminn var kominn
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
fylling
fyllingin
þolfall
fyllingu
fyllinguna
þágufall
fyllingu
fyllingunni
eignarfall
fyllingar
fyllingarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
fyllingar
fyllingarnar
þolfall
fyllingar
fyllingarnar
þágufall
fyllingum
fyllingunum
eignarfall
fyllinga
fyllinganna