Yrða

gjalla

sagnorð
gefa frá sér hátt og hvellt hljóð
hátalarar tóku að gjalla í versluninni
kirkjuklukkur gullu á slaginu tvö
gjalla við
taka til máls skyndilega og með háum rómi
sjáðu köttinn, gall drengurinn við
kunnugleg rödd gall við fyrir aftan mig
það gellur í <henni>
hún tekur skyndilega til máls hárri röddu
allt í einu gellur í honum ,,sjáiði kallinn"
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
gell
gall
önnur persóna
gellur
gallst
þriðja persóna
gellur
gall
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
gjalli
gylli
önnur persóna
gjallir
gyllir
þriðja persóna
gjalli
gylli
nafnháttur
gjalla
sagnbót
gollið
lýsingarháttur nútíðar
gjallandi
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
gollinn
gollin
gollið
þolfall
gollinn
gollna
gollið
þágufall
gollnum
gollinni
gollnu
eignarfall
gollins
gollinnar
gollins