Yrða

glata

sagnorð þágufall
týna (e-u), tapa (e-u), missa (e-ð) frá sér
ég glataði regnhlífinni minni í gær
þjóðin glataði frelsi sínu við innrásina
við glötum ekki þekkingunni ef við skráum allt vandlega niður
sagan var til í handriti sem er nú glatað
→ sjá: glatast sagnorð, glataður lýsingarorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
glata
glataði
önnur persóna
glatar
glataðir
þriðja persóna
glatar
glataði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
glati
glataði
önnur persóna
glatir
glataðir
þriðja persóna
glati
glataði
nafnháttur
glata
sagnbót
glatað
lýsingarháttur nútíðar
glatandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
glata
glataðu
glatið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
glatarðu
glataðirðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
glatirðu
glataðirðu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
glataður
glötuð
glatað
þolfall
glataðan
glataða
glatað
þágufall
glötuðum
glataðri
glötuðu
eignarfall
glataðs
glataðrar
glataðs