Yrða

gull2

nafnorð hvorugkyn
1
gulur, verðmætur málmur, frumefnið Au
skíra gull
armbandið er úr skíra gulli
2
gullverðlaun (í íþróttum)
Jón hreppti gullið í hástökki
bera af <öðrum> eins og gull af eiri
hafa mikla yfirburði yfir hann
bjóða <honum> gull og græna skóga
heita honum góðum launum
gullið mitt!
augasteinninn minn
liggja á <fjármunum> eins og ormur á gulli
gæta þeirra mjög vel
lofa <honum> gulli og grænum skógum
heita honum góðum launum
vera gull af manni
vera mjög góður maður
<búðin> malar gull
hún gefur vel af sér
fyrirtækið á eftir að mala gull á þessari nýjung
<góð menntun> er gulli betri
... er meira virði en peningar
<upplýsingarnar> eru gulls ígildi
þær eru mikils virði
<hún> er þyngdar sinnar virði í gulli
hún er mjög dýrmæt eða mikilvæg
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
gull
gullið
þolfall
gull
gullið
þágufall
gulli
gullinu
eignarfall
gulls
gullsins