heimur
nafnorð karlkyn
1
veröldin, hinn óendanlegi alheimur
heimurinn er að þenjast út
2
allir staðir á jörðinni
<fara> út í heim
<ferðast> út um allan heim
<þetta er þekkt> um allan heim
koma í heiminn
fæðast
leggja heiminn að fótum sér
öðlast frægð erlendis, vera dáður alls staðar
lifa í sínum eigin heimi
lifa úr tengslum við umhverfi sitt
sigra heiminn
öðlast frægð erlendis
sýna <honum> í tvo heimana
hóta honum
vera í öðrum heimi
vera úr tengslum við umhverfi sitt
vera milli heims og helju
vera hættulega veikur eða særður
vita hvorki í þennan heim né annan
vera rænulaus
<besti pabbi> í heimi
besti pabbi í allri veröldinni, undir sólinni
Orðasambönd
Orðasambönd
- allur heimurinn
- annars heims
- á endimörkum heims
- barn kemur í heiminn
- brosa framan í heiminn
- brosa við heiminum
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
heimur
heimurinn
þolfall
heim
heiminn
þágufall
heimi
heiminum
eignarfall
heims
heimsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
heimar
heimarnir
þolfall
heima
heimana
þágufall
heimum
heimunum
eignarfall
heima
heimanna