Yrða

heita

sagnorð
1
bera tiltekið nafn
hvað heitir hún?
fjallið heitir Esja
hún hét réttu nafni Sif
2
þágufall/þágufall
lofa (e-u) hátíðlega
ég heiti þér þessu
hann hét því að skila aftur peningunum
3
heita á <Óðin>
biðja til Óðins, ákalla Óðin (sér til hjálpar)
þeir hétu á dýrlinginn að koma sér til bjargar
4
þágufall
ferðinni er heitið <til borgarinnar>
borgin er takmark ferðarinnar
hvert er ferðinni heitið?
5
láta <þetta> gott heita
láta það nægja, vera sáttur við þetta
ég þagði og lét þetta gott heita
það á að heita svo
það er svo í orði kveðnu
það á að heita svo að göturnar séu sópaðar
það má heita <svo>
það er næstum <þannig>
það mátti heita fullvíst að hann væri með peningana
það getur ekki heitið
það er ekki hægt að halda því fram (að svo sé)
það getur ekki heitið að komið hafi full dagsbirta í dag
það er ekkert sem heitir
það þýðir ekkert annað
þú verður að skila ritgerðinni, það er ekkert sem heitir
<þetta> á að heita <sparnaður>
þetta á að vera sparnaður (en er það í raun ekki)
hún á að heita lærður kokkur
herbergið átti að heita með sjónvarpi en það sást hvergi
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
heiti
hét
önnur persóna
heitir
hést
þriðja persóna
heitir
hét
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
heiti
héti
önnur persóna
heitir
hétir
þriðja persóna
heiti
héti
nafnháttur
heita
sagnbót
heitið
sagnbót
heitað
lýsingarháttur nútíðar
heitandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
heit
heittu
heitið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
heitirðu
héstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
heitirðu
hétirðu