hitt
fornafn hvorugkyn
ábendingarfornafn
1
→ sjá: hinn fornafn
2
vísar til eftirfarandi setningar eða setningarliðar
svo er hitt að þeir hafa enn ekki lokið verkinu
hitt er svo annað mál að þeim tekst örugglega að ljúka því fyrir haustið
hitt og þetta
ýmislegt
hún þurfti að kaupa hitt og þetta í búðinni
oftar en hitt
oftast nær, yfirleitt
vegurinn er nú sjaldan farinn og oftar en hitt ófær
gera hitt
óformlegt
sofa hjá
Þórbergur skrifaði um að gera hitt og allir vissu hvað hann átti við
(eða) hitt þó heldur
(eða) þvert á móti
þetta var nú glæsileg frammistaða eða hitt þó heldur
Fallbeygingar
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
hinn
hin
hitt
þolfall
hinn
hina
hitt
þágufall
hinum
hinni
hinu
eignarfall
hins
hinnar
hins
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
hinir
hinar
hin
þolfall
hina
hinar
hin
þágufall
hinum
hinum
hinum
eignarfall
hinna
hinna
hinna