hlaupa
sagnorð
1
fara hratt áfram á fótunum
hann hleypur hálftíma á dag
ég hljóp eins hratt og ég gat
hún hljóp eins og fætur toguðu
krakkarnir hlupu á harðaspretti bak við húsið
kötturinn hljóp á eftir músinni
hlaupa við fót
ganga og hlaupa í senn
2
(um þvott) skreppa saman í þvotti
buxurnar hlupu í þvotti
3
(um vatnsfall) vaxa mikið og flæða
áin hleypur á hverju ári
4
(um jökul eða jarðveg) þrýstast fram, fara út yfir mörk sín
skriðjökullinn hleypur öðru hverju
5
hlaupa + á
hlaupa á sig
gera fljótfærnismistök
blaðið hljóp á sig og birti ranga mynd með fréttinni
6
hlaupa + frá
hlaupa frá <verkinu>
fara frá verkinu, yfirgefa það
smiðurinn hljóp frá hálfkláruðu verki
7
hlaupa + í
það hleypur í <hana> <reiði>
hún fyllist reiði
hann talar ekki við mig, hvað hefur hlaupið í hann?
8
hlaupa + til
hlaupa til
bregðast skjótt við
hún hljóp til og hjálpaði gamla manninum
9
hlaupa + uppi
hlaupa <hana> uppi
hlaupa á eftir henni og ná henni
10
hlaupa + út undan
hlaupa út undan sér
sýna ótryggð, óheiðarleika
11
hlaupa + yfir
hlaupa yfir <eitt atriði>
sleppa einu atriði (því að lesa það, fara í það)
nemendurnir mega hlaupa yfir 4. kaflann
→ sjá: hlaupast sagnorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hleyp
hljóp
önnur persóna
hleypur
hljópst
þriðja persóna
hleypur
hljóp
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hlaupum
hlupum
önnur persóna
hlaupið
hlupuð
þriðja persóna
hlaupa
hlupu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hleypst
hljópst
önnur persóna
hleypst
hljópst
þriðja persóna
hleypst
hljópst
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hlaupumst
hlupumst
önnur persóna
hlaupist
hlupust
þriðja persóna
hlaupast
hlupust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hlaupi
hlypi
önnur persóna
hlaupir
hlypir
þriðja persóna
hlaupi
hlypi
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hlaupum
hlypum
önnur persóna
hlaupið
hlypuð
þriðja persóna
hlaupi
hlypu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hlaupist
hlypist
önnur persóna
hlaupist
hlypist
þriðja persóna
hlaupist
hlypist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hlaupumst
hlypumst
önnur persóna
hlaupist
hlypust
þriðja persóna
hlaupist
hlypust
nafnháttur
hlaupa
sagnbót
hlaupið
lýsingarháttur nútíðar
hlaupandi
nafnháttur
hlaupast
sagnbót
hlaupist
lýsingarháttur nútíðar
hlaupandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
hlaup
hlauptu
hlaupið
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
—
hlaupstu
hlaupist
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hleypurðu
hljópstu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hlaupiði
hlupuði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hlaupirðu
hlypirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hlaupiði
hlypuði
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hleypstu
hljópstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hlaupistu
hlypistu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
hlaupinn
hlaupin
hlaupið
þolfall
hlaupinn
hlaupna
hlaupið
þágufall
hlaupnum
hlaupinni
hlaupnu
eignarfall
hlaupins
hlaupinnar
hlaupins
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
hlaupnir
hlaupnar
hlaupin
þolfall
hlaupna
hlaupnar
hlaupin
þágufall
hlaupnum
hlaupnum
hlaupnum
eignarfall
hlaupinna
hlaupinna
hlaupinna