hvor
fornafn
um tvo eða tvennt
1
(í upphafi beinnar spurningar um tvo eða tvennt) annar eða hinn?
hvor stelpan er eldri?
í hvorum fætinum finnurðu meira til?
hvor ykkar heitir Jón?
hvort viltu frekar fara í bíó eða leikhúsið?
2
(sem tengiorð í upphafi spurnaraukasetningar; um tvo eða tvennt) annar eða hinn
við vissum ekki í hvora áttina við áttum að fara
hún spurði mig hvora bókina mig langaði meira í
við veltum fyrir okkur hvort við ættum að fara strax eða svolítið seinna
3
hver einstakur af pari eða tvennd
hún er með tvo hringa á hvorri hendi
ég get notað hvorn pennann sem er
systurnar eiga tvö börn hvor
hvort bindi fyrir sig er yfir 400 blaðsíður
hvort heldur (sem)
sama hvort er af tvennu
Jóna ætlar að gera þetta hvort heldur sem þér líkar það vel eða illa
Fallbeygingar
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
hvor
hvor
hvort
þolfall
hvorn
hvora
hvort
þágufall
hvorum
hvorri
hvoru
eignarfall
hvors
hvorrar
hvors
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
hvorir
hvorar
hvor
þolfall
hvora
hvorar
hvor
þágufall
hvorum
hvorum
hvorum
eignarfall
hvorra
hvorra
hvorra