kál
nafnorð hvorugkyn
flokkur matjurta (Brassica) af krossblómaætt; meðal tegunda eru blómkál, hvítkál, grænkál, rauðkál og spergilkál
ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið
ekki er öruggt að málalok verði eins og útlit er fyrir
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Samstæður
- kartöflur
- , baunir
- , sveppir
- , rótarávöxtur
Orðasambönd
- ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið
- hafa ekki sopið kálið úr ausunni
- kálið er ekki sopið
- skera kálið
- súpa kálið
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
kál
kálið
þolfall
kál
kálið
þágufall
káli
kálinu
eignarfall
káls
kálsins