Yrða

kjafta

sagnorð
tala mikið
hann getur kjaftað endalaust um fótbolta
við sátum í eldhúsinu og kjöftuðum saman
kjafta frá (leyndarmálinu)
segja frá leyndarmáli, ljóstra upp leyndarmáli
hún vildi halda trúlofun þeirra leyndri en hann kjaftaði frá
kjafta <hneykslinu> í <hana>
segja henni frá því
gættu þín hvað þú segir, hann kjaftar öllu í yfirmanninn
kjafta sig út úr <vandræðunum>
útskýra með orðum og bæta fyrir hugsanlegan skaða
ég gerði slæm mistök en mér tókst að kjafta mig út úr því
það kjaftar á <honum> hver tuska
hann talar mjög mikið, er mjög málgefinn
hún var kát í veislunni, það kjaftaði á henni hver tuska
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
málgleði / málæði
Samstæður
Orðasambönd
  • kjafta af sér allt lag
  • kjafta af sér allt vit
  • kjafta frá
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
kjafta
kjaftaði
önnur persóna
kjaftar
kjaftaðir
þriðja persóna
kjaftar
kjaftaði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
kjafti
kjaftaði
önnur persóna
kjaftir
kjaftaðir
þriðja persóna
kjafti
kjaftaði
nafnháttur
kjafta
sagnbót
kjaftað
lýsingarháttur nútíðar
kjaftandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
kjafta
kjaftaðu
kjaftið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
kjaftarðu
kjaftaðirðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
kjaftirðu
kjaftaðirðu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
kjaftaður
kjöftuð
kjaftað
þolfall
kjaftaðan
kjaftaða
kjaftað
þágufall
kjöftuðum
kjaftaðri
kjöftuðu
eignarfall
kjaftaðs
kjaftaðrar
kjaftaðs