Yrða

klukka

nafnorð kvenkyn
1
tímamælir þar sem (a.m.k.) tveir vísar ganga í hring og mælir annar klukkustundir og hinn mínútur
hvað er klukkan?
klukkan er <tvö>
klukkan er að verða <tvö>
klukkan er <tíu mínútur> gengin í <fjögur>
klukkan er <tíu mínútur> yfir <þrjú>
klukkan slær
klukkuna vantar <tvær mínútur> í <þrjú>
2
bjalla, kirkjuklukka
skilja hvað klukkan slær
átta sig á stöðunni
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
klukka
klukkan
þolfall
klukku
klukkuna
þágufall
klukku
klukkunni
eignarfall
klukku
klukkunnar