skór
nafnorð karlkyn
fótabúnaður sem samanstendur af sóla og yfirleðri og haldið er saman með reimum, spennu, teygju eða rennilás
finna hvar skórinn kreppir
átta sig á því hvar erfiðleikarnir, vandamálin eru
gera því skóna að <einhver bjóðist til að fara>
gera ráð fyrir því
heilla <hana> upp úr skónum
láta hana hrífast af sér
láta ekki vaða ofan í sig á skítugum skónum
sætta sig ekki við neinn yfirgang
níða niður af <honum> skóinn
tala illa um hann
plata <hana> upp úr skónum
beita hana blekkingum
vaða yfir <hana> á skítugum skónum
sýna henni lítilsvirðingu
vera bundinn í báða skó
hafa miklum skyldum að gegna
það fer enginn í skóna <hans>
enginn getur tekið við hans hlutverki
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
skófatnaður
Samstæður
- sokkar
- , vettlingar
- , sokkabuxur
- , belti
- , veski
- , pollagalli
Orðasambönd
- áður en krákan lætur á sig skóna
- búa sig út með nesti og nýja skó
- danskir skór
- finna hvar skórinn kreppir
- finna hvar skórinn kreppir að
- finna hvar skórinn særir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
skór
skórinn
þolfall
skó
skóinn
þágufall
skó
skónum
eignarfall
skós
skósins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
skór
skórnir
þolfall
skó
skóna
þágufall
skóm
skónum
eignarfall
skóa
skónna