kragi
nafnorð karlkyn
1
jaðar efst á flík kringum hálsinn, venjulega brettur niður
hann bretti upp kragann á frakkanum
2
laus flík til að hafa utan um hálsinn
hún var með kraga úr skinni um hálsinn
3
yfirfærð merking
mjótt svæði sem umkringir annað
Suðvesturkjördæmi er oft nefnt kraginn
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
kragi
kraginn
þolfall
kraga
kragann
þágufall
kraga
kraganum
eignarfall
kraga
kragans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
kragar
kragarnir
þolfall
kraga
kragana
þágufall
krögum
krögunum
eignarfall
kraga
kraganna