kraftur
nafnorð karlkyn
1
afl, styrkur, orka
líkamlegir kraftar
mikill kraftur býr í fossinum
málverkið er þrungið dramatískum krafti
2
atorka, lífsorka, þrek
hreina loftið fyllti hana krafti
það er kraftur í börnunum
höfundurinn skrifar enn af krafti
kraftar hans eru að þverra
3
í fleirtölu
náttúruöfl
gríðarlegir kraftar hafa mótað landið
4
e-ð kjarngott, bragðstyrkur, kjarni
krafturinn úr kjötinu fer í sósuna
5
eðlisfræði
áhrif sem verka á hlut t.d. þannig að hraði hans breytist (mælieining Newton (N))
safna kröftum
fá meiri orku með tímanum
helga <leiklistinni> krafta sína
vinna í þágu leiklistarinnar
<stunda námið> af fullum krafti
leggja sig allan fram við námið
<toga í bandið> af öllum kröftum
toga í bandið af öllu afli
<hrópa> af öllum lífs og sálar kröftum
hrópa eins hátt og maður getur
<hafa áhrif> í krafti <auðæfa sinna>
hafa áhrif með hjálp þeirra peninga sem viðkomandi á
<þeir> sameina kraftana/krafta sína
þeir vinna saman
Orðasvið og samstæður
Samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
kraftur
krafturinn
þolfall
kraft
kraftinn
þágufall
krafti
kraftinum
eignarfall
kraftskraftar
kraftsinskraftarins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
kraftar
kraftarnir
þolfall
krafta
kraftana
þágufall
kröftum
kröftunum
eignarfall
krafta
kraftanna