Yrða

láta

sagnorð þolfall
1
setja (e-ð) á e-n stað
hún lét kaffibollann á borðið
hann lætur fötin í skúffuna
hvar léstu bókina mína?
láta <skjalið> af hendi
láta e-n fá það, láta það frá sér
láta <honum> <upplýsingar> í té
veita honum upplýsingar
2
hegða sér (einhvern veginn)
hann lætur eins og fífl
börnin létu illa í leikhúsinu
ég lét sem ég heyrði þetta ekki
láta sem ekkert sé
láta sem ekkert hafi í skorist
láta öllum illum látum
láttu ekki svona
3
háttarsögn, merkir orsök, orsakavald
láttu hana ekki bíða
hann lét eggin sjóða í 10 mínútur
ég ætla að láta klippa mig
þau létu mála húsið
látum svo vera
segjum sem svo
4
um afskiptaleysi, íhlutunarleysi
láta <hana> eiga sig
láta <hana> í friði
láta <hana> vera
5
láta lífið
deyja (af slysi eða af völdum árásar)
6
láta í haf
sigla af stað
7
í afturbeygðum samböndum:
láta sig ekki
gefa ekki eftir (í orðræðu, deilu, ákvörðun)
láta sér annt um <barnið>
bera umhyggju fyrir barninu
láta sér ekki bregða
bregða ekki
láttu þér ekki bregða þótt hann komi með stóran hund
láta sér fátt um finnast
vera lítið hrifinn, láta lítil viðbrögð í ljós
láta sér (ekki) segjast
fara (ekki) að fyrirmælum, hlýða (ekki)
láta sér <þetta> vel líka
vera sáttur, ánægður
hún lætur sér vel líka að búa uppi í risinu
8
þágufall
henta, hæfa
henni lætur vel að kenna yngstu nemendunum
9
láta + að
láta vel að <henni>
gæla við hana, kjassa hana
10
láta + af
a
láta af <þessu>
hætta þessu
hann lét af allri stríðni við hana
láta af störfum/embætti
hún lét af embætti fyrir aldurs sakir
b
láta <vel> af <vinnunni>
bera vinnunni vel söguna, tala ánægjulega um vinnuna
hann lætur vel af sér í Finnlandi
11
láta + aftur
láta aftur hurðina/augun
loka hurðinni/augunum
hann lét aftur augun og sofnaði
12
láta + á móti
láta ekkert á móti sér
neita sér ekki um neitt
13
láta + eftir
a
láta allt eftir sér
neita sér ekki um neitt
láta <allt> eftir <barninu>
gera allt sem barnið fer fram á
b
láta eftir sig <miklar eignir>
deyja og skilja eftir miklar eignir
14
láta + nærri
það lætur nærri
það er nálægt því
það lætur nærri að hann gefi út bók á hverju ári
15
láta + undan
a
láta undan <henni>
gera eins og hún segir, gefast upp fyrir henni
þau létu undan þrábeiðni barnanna
b
láta undan
gefa eftir, brotna, svigna
þakið lét undan fannferginu
16
láta + uppi
láta <lítið> uppi
segja sem minnst
þeir létu ekkert uppi um áform sín
17
láta + út úr
láta <þetta> út úr sér
segja þetta (af gáleysi)
18
láta + yfir
láta lítið yfir sér
vera ekki áberandi, vera hógvær
byggingin var dýr þótt hún láti lítið yfir sér
eins og að líkum lætur
eins og við er að búast
ég læt það vera
sem andsvar: ekki svo mjög, ekkert sérstaklega
láta <mikið> að sér kveða
vera áberandi, drífandi, áhrifamikill
láta ekki að sér hæða
vera duglegur, ákveðinn, vekja aðdáun
láta ekki á sér standa
sýna skjót viðbrögð, drífa sig
láta ekki bugast
gefast upp frammi fyrir erfiðum aðstæðum, vonleysi og vanlíðan
láta ekki <tækifærið> hjá líða
sleppa ekki tækifærinu
láta ekki hugfallast
missa ekki kjarkinn
láta ekki sitja við orðin tóm
framkvæma en ekki bara tala um hlutina
láta ekki sitt eftir liggja
sýna framtakssemi, vera duglegur
láta ekki troða á sér
láta ekki kúga sig eða undiroka
láta ekki vaða ofan í sig
láta ekki sýna sér yfirgang í orðum
láta hart mæta hörðu
taka á móti af fullri hörku
láta <skoðun sína> í ljós
segja skoðun sína
láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna
vera kjarkmikill, hugaður
láta svo lítið
gera sér þetta litla ómak, leggja það á sig
láta svo um mælt
segja svo, geta þess
láta til skarar skríða
hefja framkvæmd, byrja á e-u
láta þetta ekki á sig fá
láta þetta ekki angra sig, trufla sig
þegar best/verst lætur
við bestu/verstu aðstæður, í bestu/verstu birtingarmynd sinni
þegar til lengdar lætur
eftir því sem tíminn líður
→ sjá: látast2 sagnorð, látast1 sagnorð, látinn lýsingarorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
læt
lét
önnur persóna
lætur
lést
þriðja persóna
lætur
lét
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
láti
léti
önnur persóna
látir
létir
þriðja persóna
láti
léti
nafnháttur
láta
sagnbót
látið
lýsingarháttur nútíðar
látandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
lát
láttu
látið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
læturðu
léstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
látirðu
létirðu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
látinn
látin
látið
þolfall
látinn
látna
látið
þágufall
látnum
látinni
látnu
eignarfall
látins
látinnar
látins