leikur
nafnorð karlkyn
1
það að leika sér, það að leika að leikföngum eða eftir settum reglum
fara í leik/leiki
leika sér í ákveðnum leik/leikjum
2
það að fara í hlutverk á leiksviði eða í kvikmynd
leikkonan sýndi feikigóðan leik
3
4
tilfærsla manns á taflborði eða öðru spili
hver skák er u.þ.b. 40 leikir
eiga leik
eiga að leika næst, t.d. í skák
bregða á leik
a
vera með gamansemi
b
leika sér, hlaupa um og ærslast
eiga leikinn
a
eiga að láta til sín taka næst
b
hafa yfirhöndina, vera betri
gera sér leik að því að <hrekkja hana>
gera sér til skemmtunar að stríða henni
leikurinn æsist
það færist spenna í málið
sjá sér leik á borði
grípa tækifærið
skakka leikinn
skipta sér af til að stilla til friðar
skerast í leikinn
blanda sér í deilur
skerast úr leik
vilja ekki (lengur) taka þátt í e-u
vera úr leik
vera ekki lengur þátttakandi í e-u
<hefja nám> á nýjan leik
byrja aftur að stunda nám
<þetta> er leikur einn
þetta er mjög auðvelt
<ná prófinu> með leik
ná prófinu auðveldlega
<komast heim> við illan leik
komast heim með miklum erfiðismunum
Orðasvið og samstæður
leikur
Samstæður
- skemmtun
- , íþróttir
- , félagslíf
- , gleðskapur
- , gönguferð
- , gleði
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
leikur
leikurinn
þolfall
leik
leikinn
þágufall
leik
leiknum
eignarfall
leiks
leiksins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
leikirleikar
leikirnirleikarnir
þolfall
leikileika
leikinaleikana
þágufall
leikjumleikum
leikjunumleikunum
eignarfall
leikjaleika
leikjannaleikanna