liggja
sagnorð
1
vera í láréttri stellingu
hún liggur í rúminu
kötturinn lá á mottunni
við lágum í grasinu og horfðum upp í himininn
liggja á grúfu
liggja veikur
hér liggur <hann>
hér er hann grafinn
2
(um flata hluti eða hluti á hliðinni) vera í flatri stöðu
bókin liggur opin á borðinu
hálsfestin lá á botni skúffunnar
fötin lágu á gólfinu
3
(um veg, leið) hafa staðsetningu eða stefnu, vera staðsettur
vegurinn lá eftir dalnum
gatan liggur í hálfhring
<halda> sem leið liggur
fara eftir veginum
4
liggja + að
a
<Danmörk> liggur að <Þýskalandi>
Danmörk á landamæri að Þýskalandi
b
láta að því liggja
gefa það í skyn, gefa það til kynna
látið var að því liggja að fjárveitingin hafi verið ólögleg
5
liggja + á
a
þágufall<mér> liggur á
ég er að flýta mér
honum lá ekkert á að fara heim
<henni> liggur lífið á
það liggur (ekki) á <þessu>
b
það liggur <vel> á <honum>
hann er í góðu skapi
c
liggja á eggjum
(um fugl) vera á eggjum í hreiðri
d
liggja á <peningunum>
láta þá ekki frá sér, halda fast í þá
6
liggja + eftir
það liggur <mikið> eftir <hana>
hún á mörg verk að baki (t.d. bækur, kvæði)
7
liggja + frammi
<eyðublaðið> liggur frammi
eyðublaðið er aðgengilegt (á opinberum stað)
8
liggja + fyrir
a
liggja fyrir
liggja í rúminu (vegna veikinda eða til að hvíla sig)
b
liggja fyrir dauðanum
bíða fársjúkur eftir að deyja
c
það liggur fyrir að <ákveða þetta>
það er úrlausnarefni að ákveða þetta, það stefnir í það
það liggur ekkert fyrir um <þetta>
það er óljóst, óákveðið
d
<þetta> á fyrir <henni> að liggja
þetta mun koma fyrir hana, framtíðin ber þetta í skauti sér
það átti ekki fyrir honum að liggja að koma til Ameríku
<þetta> liggur fyrir <honum>
þetta kemur fyrir hann í framtíðinni, þetta verða örlög hans
við vissum ekki að þetta lægi fyrir okkur
e
<þetta> liggur opið fyrir <honum>
hann á auðvelt með þetta, að læra þetta
9
liggja + í
a
liggja í <flensu>
vera veikur af flensu
b
liggja í bókum
gefa bóklestri mikinn tíma og áhuga
c
liggja í því
neyta áfengis stöðugt
d
liggja í því
fá skell, bíða ósigur, verða undir
þar lástu í því!
e
þannig liggur í því
þannig er málið vaxið, þannig er það
þannig lá í því að þeir ætluðu að hittast um kvöldið
f
það liggur í augum uppi
það er augljóst
g
<þetta> liggur í því
þetta er fólgið í því
þrautin lá í því að hann átti að drepa hættulegan dreka
h
<spenna> liggur í loftinu
spenna er í andrúmsloftinu
10
liggja + með
liggja með <henni>
hafa kynmök við hana, leggjast með henni
11
liggja + niðri
<starfsemin> liggur niðri
starfsemin er ekki í gangi
flugsamgöngur lágu niðri í óveðrinu
12
liggja + nærri
það lá nærri <öngþveiti>
það var komið nálægt öngþveiti, öngþveiti varð næstum
það lá nærri að hann æki út af
13
liggja + undir
a
liggja undir grun
vera grunaður
b
<viðurinn> liggur undir skemmdum
hann er við það að skemmast
14
liggja + til
<sterk rök> liggja til <þess>
sterk rök eru fyrir því
margar ástæður liggja til þess að salurinn er heppilegur
15
liggja + úti
liggja úti
búa í tjaldi
16
liggja + við
a
<þetta> liggur beint við
þetta er augljóst, nærtækt, hentugt
það lá beint við að spyrja bóndann til vegar
b
þágufall<mér> liggur við <köfnun>
ég er alveg að kafna
það lá við <árekstri>
það varð næstum árekstur
það lá við að hann missti jafnvægið
það lá við sjálft að <hann félli útbyrðis>
hann féll næstum útbyrðis, minnstu munaði að ...
c
það liggja <háar sektir> við <brotinu>
sá fær háa sekt sem fremur slíkt brot
d
ef / þegar mikið liggur við
ef þess nauðsynlega þarf, ef aðstæður krefjast þess, ef í hart fer
ef mikið lá við afgreiddi eigandinn sjálfur í búðinni
e
liggja við
gamalt
búa í tjaldi
17
liggja + yfir
liggja yfir <þessu>
skoða þetta vandlega
hann lá lengi yfir heimadæmunum
láta ekki sitt eftir liggja
taka þátt í skyldustörfum
það liggur í augum uppi
það er augljóst
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ligg
lá
önnur persóna
liggur
lást
þriðja persóna
liggur
lá
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
liggjum
lágum
önnur persóna
liggið
láguð
þriðja persóna
liggja
lágu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
liggi
lægi
önnur persóna
liggir
lægir
þriðja persóna
liggi
lægi
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
liggjum
lægjum
önnur persóna
liggið
lægjuð
þriðja persóna
liggi
lægju
nafnháttur
liggja
sagnbót
legið
lýsingarháttur nútíðar
liggjandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
ligg
liggðu
liggið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
liggurðu
lástu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
liggiði
láguði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
liggirðu
lægirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
liggiði
lægjuði
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þágufalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
liggur
lá
önnur persóna
liggur
lá
þriðja persóna
liggur
lá
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
liggur
lá
önnur persóna
liggur
lá
þriðja persóna
liggur
lá
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
liggi
lægi
önnur persóna
liggi
lægi
þriðja persóna
liggi
lægi
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
liggi
lægi
önnur persóna
liggi
lægi
þriðja persóna
liggi
lægi
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
liggur
lá
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
liggi
lægi
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
leginn
legin
legið
þolfall
leginn
legna
legið
þágufall
legnum
leginni
legnu
eignarfall
legins
leginnar
legins
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
legnir
legnar
legin
þolfall
legna
legnar
legin
þágufall
legnum
legnum
legnum
eignarfall
leginna
leginna
leginna