Yrða

leggjast

sagnorð miðmynd
1
fara í liggjandi stellingu
hún lagðist í rúmið
leggstu niður og hvíldu þig
hundurinn leggst á gólfið
við lögðumst til svefns í hlöðunni
2
leggjast lágt
auðmýkja sig
ég gat ekki lagst svo lágt að betla peninga
3
leggjast + að
<skipið> leggst að bryggju
skipið nemur staðar við bryggjuna
4
leggjast + af
<siðurinn> leggst af
siðurinn hættir með öllu
veiðar á bjargfugli hafa lagst af að mestu
5
leggjast + á
a
leggjast á eitt
hjálpast að, taka höndum saman
vinir hans lögðust á eitt um að hjálpa honum
b
<refurinn> leggst á <lömbin>
refurinn sækir í lömbin
c
<áhyggjurnar> leggjast þungt á <hana>
áhyggjurnar hvíla þungt á henni
6
leggjast + gegn
leggjast gegn <tillögunni>
vera á móti, andmæla tillögunni
íbúarnir lögðust gegn byggingu háhýsisins
7
leggjast + í
a
leggjast í þunglyndi
verða þunglyndur
b
leggjast í drykkju
fara að drekka mikið áfengi
c
leggjast í ferðalög
fara að ferðast mikið
d
leggjast í dvala
fara í vetrarsvefn (einkum um dýr)
e
<verkefnið> leggst <vel> í <mig>
ég hef góða tilfinningu fyrir komandi verkefni
8
leggjast + með
leggjast með <henni>
fara í rúmið með henni, hafa mök við hana
9
leggjast + niður
<framleiðslan> leggst niður
framleiðslan hættir, stöðvast fyrir fullt og allt
hvalveiðar lögðust niður við landið
10
leggjast + til
þágufall<mér> leggst <eitthvað> til
ég fæ einhver úrræði, efni eða peninga
hann lánar þeim vonandi dálítið, þeim leggst eitthvað til
11
leggjast + yfir
a
<þokan> leggst yfir <borgina>
þokan kemur yfir borgina
b
leggjast yfir <textann>
skoða, rýna vandlega í textann
þær lögðust yfir orðalag samningsins
→ sjá: leggja sagnorð, lagstur lýsingarorð
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
stellingarbreyting
Samstæður
Orðasambönd
  • grasið leggst
  • grasið leggst í leg
  • hann leggst í rigningar
  • skammdegið leggst yfir
  • það leggst allt í lamasess
  • það leggst lítið fyrir kappann
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
leggst
lagðist
önnur persóna
leggst
lagðist
þriðja persóna
leggst
lagðist
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
leggist
legðist
önnur persóna
leggist
legðist
þriðja persóna
leggist
legðist
nafnháttur
leggjast
sagnbót
lagst
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
—
leggstu
leggist
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
leggstu
lagðistu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
leggistu
legðistu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þágufalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
leggst
lagðist
önnur persóna
leggst
lagðist
þriðja persóna
leggst
lagðist
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
leggist
legðist
önnur persóna
leggist
legðist
þriðja persóna
leggist
legðist