lykilorð
nafnorð hvorugkyn lykil-orð
1
orð sem vísar til aðalatriðis
friðargæsla er lykilorð í umræðum um öryggismál
2
tölvur
runa af stöfum, tölum og táknum sem notandi þarf að slá inn til að komast á vefsíðu, í tölvukerfi o.þ.h., aðgangsorð
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
lykilorð
lykilorðið
þolfall
lykilorð
lykilorðið
þágufall
lykilorði
lykilorðinu
eignarfall
lykilorðs
lykilorðsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
lykilorð
lykilorðin
þolfall
lykilorð
lykilorðin
þágufall
lykilorðum
lykilorðunum
eignarfall
lykilorða
lykilorðanna