Yrða

mikill

lýsingarorð
1
af háu stigi hvað varðar stærð, umfang, mikilvægi eða gildi, stór
gamla dómkirkjan er mikil bygging
hann hefur mikinn áhuga á hestum
hún er mikil áhugakona um laxveiði
leiksýningin vakti mikla hrifningu
gamli forsetinn var mikill leiðtogi
þau eiga í miklum erfiðleikum með skuldirnar
<þetta> er mikill/mesti misskilningur
2
persóna
vera mikill um sig
vera þéttvaxinn, allfeitur
vera stór og mikill
vera stór og þrekinn
3
til áherslu
þetta er meiri <vitleysan>
þetta er mesta <vitleysa>
4
sem atviksorð
verulega, mjög
barnið hefur stækkað mikið
hún hló mikið að þessu
bærinn breyttist mikið á þeim árum
→ sjá: mikið lýsingarorð
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Orðasambönd
  • eiga ekki af miklum rótum að rakna
  • gera mikið úr litlu
  • geta ekki meira
  • hafa ekki af miklum manni að má
  • hafa ekki úr miklu að moða
  • í mesta gæti
Frumstig
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
mikill
mikil
mikið
þolfall
mikinn
mikla
mikið
þágufall
miklum
mikilli
miklu
eignarfall
mikils
mikillar
mikils
Miðstig
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
meiri
meiri
meira
þolfall
meiri
meiri
meira
þágufall
meiri
meiri
meira
eignarfall
meiri
meiri
meira
Efsta stig
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
mestur
mest
mest
þolfall
mestan
mesta
mest
þágufall
mestum
mestri
mestu
eignarfall
mests
mestrar
mests