ráðstöfun
nafnorð kvenkyn ráð-stöfun
1
það að ráðstafa e-u, ákvörðun um notkun
forstöðumaður safnsins sér um ráðstöfun fjárins
hafa <mikið fé> til ráðstöfunar
hafa mikið fé til að skipuleggja eyðslu á
2
ákvörðun um að gera e-ð, aðgerð, framkvæmd
við gerðum ráðstafanir til að hundurinn slyppi ekki út úr garðinum
ráðstöfun ríkisstjórnarinnar í orkumálum
grípa til <viðeigandi> ráðstafana
til hvaða ráðstafana ætlið þið að grípa til að auka söluna?
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
ráðstöfun
Orðasambönd
- gera ráðstafanir
- gera ráðstöfun eigna sinna
- grípa til ráðstafana
- sértækar ráðstafanir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
ráðstöfun
ráðstöfunin
þolfall
ráðstöfun
ráðstöfunina
þágufall
ráðstöfun
ráðstöfuninni
eignarfall
ráðstöfunar
ráðstöfunarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
ráðstafanir
ráðstafanirnar
þolfall
ráðstafanir
ráðstafanirnar
þágufall
ráðstöfunum
ráðstöfununum
eignarfall
ráðstafana
ráðstafananna