rass
nafnorð karlkyn
afturendi
eiga ekki bót fyrir rassinn á sér
eiga enga peninga
farðu í rass og rófu
sagt sem skammaryrði, farðu norður og niður
gefa <honum> spark í rassinn
veita honum áminningu, ýta við honum
hreyfa sig ekki spönn frá rassi
fara ekki neitt, hreyfa sig ekki
lenda/vera í rassi með <þetta>
vera orðinn allt of seinn ...
renna á rassinn með <þetta>
falla frá fyrirætlun sinni
skjóta <honum> ref fyrir rass
beita brögðum til að sigra hann, skáka honum
spila rassinn úr buxunum
fara illa að ráði sínu
það er seint í rassinn gripið að <ætla að breyta þessu núna>
það er orðið of seint ...
<bótin, stykkið> fellur eins og flís við rass
... passar nákvæmlega
Samstæður og orðasambönd
Samstæður
- læri
- , mjaðmir
- , bak
Orðasambönd
- bera öngulinn í rassinum
- bæta rassinn á buxunum sínum
- detta á rassinn
- eiga ekki bót á rassinn á sjálfum sér
- eiga ekki bót fyrir rassinn á sér
- eiga ekki spjör fyrir rassinn á sér
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
rass
rassinn
þolfall
rass
rassinn
þágufall
rassi
rassinum
eignarfall
rass
rassins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
rassar
rassarnir
þolfall
rassa
rassana
þágufall
rössum
rössunum
eignarfall
rassa
rassanna