Yrða

renna2

sagnorð
1
færast úr stað á aflíðandi hátt
sleðinn rann niður brekkuna
tíminn er að renna frá okkur
2
(um vatn) hreyfast, flæða, streyma
áin rennur um sléttuna
dropar runnu niður rúðuna
láta renna <í bað>
ég lét vatnið renna úr slöngunni
3
(um sólina) færast úr stað
sólin rann upp á himninum
dagur rennur
það birtir, dagar, sólin kemur upp
4
(um peninga) fara, hafna
skatturinn rennur í ríkissjóð
5
um tilfinningu eða ástand
berserksgangurinn er runninn af honum
það rennur á <hana> <höfgi>
hana syfjar
það rennur af <honum>
áfengisvíman fer af honum
6
um hreyfingu, fara, ganga
renna af hólmi
flýja
renna á hljóðið
ganga á hljóðið
renna á lyktina
ganga á lyktina
7
renna + saman
<ljósin> renna saman
ljósin mynda samfellda heild
húsin runnu saman í eina heild
8
renna + upp
<dagurinn> rennur upp
dagurinn kemur
morgundagurinn rann upp, bjartur og fagur
<þetta> rennur upp fyrir <henni>
skilningur hennar á þessu vaknar
það rann upp fyrir mér að hún var fátæk
það rennur upp fyrir <mér> ljós
ég öðlast skilning
9
renna + út
a
<fresturinn> rennur út
frestinum lýkur
skilafrestur skattframtals er runninn út
b
<matvaran> rennur út
matvaran kemur að síðasta söludegi
þessi rjómi ar alveg að renna út
→ sjá: útrunninn lýsingarorð
c
<bókin> rennur út
bókin selst mjög vel
<miðarnir> renna út eins og heitar lummur
þeir seljast hratt og vel
→ sjá: renna1 sagnorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
renn
rann
önnur persóna
rennur
rannst
þriðja persóna
rennur
rann
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
renni
rynni
önnur persóna
rennir
rynnir
þriðja persóna
renni
rynni
nafnháttur
renna
sagnbót
runnið
lýsingarháttur nútíðar
rennandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
renn
renndu
rennið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
rennurðu
rannstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
rennirðu
rynnirðu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þágufalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
rennur
rann
önnur persóna
rennur
rann
þriðja persóna
rennur
rann
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
renni
rynni
önnur persóna
renni
rynni
þriðja persóna
renni
rynni
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
rennur
rann
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
renni
rynni
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
runninn
runnin
runnið
þolfall
runninn
runna
runnið
þágufall
runnum
runninni
runnu
eignarfall
runnins
runninnar
runnins