samband
nafnorð hvorugkyn sam-band
1
tenging við rafmagn
setja <brauðristina> í samband
stinga <lampanum> í samband
taka <þvottavélina> úr sambandi
<tölvan> er í sambandi
2
tenging milli staða eða aðila svo að færi gefst til samskipta, samskipti
það hefur lengi verið gott samband milli prestsins og fjölskyldu okkar
hafa samband við <lögregluna>
halda sambandi við <æskuvin sinn>
komast í samband við <bankann>
3
ástartengsl tveggja einstaklinga, ástarsamband
hann á barn frá fyrra sambandi
í bókinni lýsir hún mörgum samböndum sínum
4
samtök, t.d. margra smærri félaga
samband smábátaeigenda
5
efnafræði
föst samverkandi tengsl tveggja eða fleiri frumefna, efnasamband
kolefnissamband
brennisteinssamband
fara úr sambandi
missa alveg einbeitinguna (t.d. af taugaóstyrk)
hann fer alltaf úr sambandi á munnlegum prófum
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
samband
sambandið
þolfall
samband
sambandið
þágufall
sambandi
sambandinu
eignarfall
sambands
sambandsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
sambönd
samböndin
þolfall
sambönd
samböndin
þágufall
samböndum
samböndunum
eignarfall
sambanda
sambandanna