samskipti
nafnorð hvorugkyn fleirtala sam-skipti
það þegar fólk hefur samgang og samtöl sín á milli
hún sinnir daglegum samskiptum við viðskiptavini fyrirtækisins
hann er lektor í alþjóðlegum samskiptum
samskipti landanna eiga sér langa sögu
bíómyndin fjallar um samskipti kynjanna
eiga samskipti við <hana>
hann átti lítil samskipti við skólafélaga sína
stofnunin á mikil samskipti við lögregluna
mannleg samskipti
vera þægilegur í samskiptum
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
samskipti
Orðasambönd
- almenn samskipti
- erfið samskipti
- erfiður í samskiptum
- félagsleg samskipti
- jákvæð samskipti
- kynferðisleg samskipti
Fallbeygingar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
samskipti
samskiptin
þolfall
samskipti
samskiptin
þágufall
samskiptum
samskiptunum
eignarfall
samskipta
samskiptanna