Yrða

samvinna

nafnorð kvenkyn sam-vinna
það að menn vinna saman og hjálpa hverjir öðrum, samstarf
danssýningin er unnin í samvinnu dansaranna og höfundarins
þau höfðu samvinnu um útgáfu bókarinnar
stjórnvöld hafa samvinnu við verkalýðshreyfinguna
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Orðasambönd
  • alþjóðleg samvinna
  • erfiður í samvinnu
  • í samvinnu
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
samvinna
samvinnan
þolfall
samvinnu
samvinnuna
þágufall
samvinnu
samvinnunni
eignarfall
samvinnu
samvinnunnar