Yrða

skera

sagnorð þolfall
1
taka (e-ð) sundur með hnífi
ég sker bita af ostinum
hún skar sneið af kökunni
laukurinn er skorinn í sneiðar
við skárum reipið í sundur
það var líkt og hljóðið skæri sundur þögnina
skera sig
meiða sig á eggjárni
hann skar sig við raksturinn
skera sig á púls
2
skera + á
skera á <bandið>
taka það í sundur með hnífi
það verður að skera á hnútinn
3
skera + niður
skera niður
minnka fjármagn, spara fé
það á að fara að skera niður í heilbrigðiskerfinu
skera <kostnaðinn> niður
4
skera + upp
skera <hana> upp
gera skurðaðgerð á henni
tveir læknar skáru upp sjúklinginn
5
skera + úr
skera úr <þessu>
ákvarða um þetta, dæma um þetta
þeir fengu lögfræðing til að skera úr deilum sínum
skattgreiðendur hafa ekki fengið úr þessu skorið
skera úr um <þetta>
getur þú skorið úr um hvor liturinn er betri?
skera sig úr
standa út úr (öðru), vera áberandi
hún er svo falleg að hún sker sig úr hópnum
6
skera + út
skera út
gera myndir í tré með skurðarjárni
skera út <bókstafi>
hann sker út dýr og fugla í við
7
skera + við
skera <matinn> við nögl
skammta hann naumt
→ sjá: skerast sagnorð, skerandi lýsingarorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
sker
skar
önnur persóna
skerð
skarst
þriðja persóna
sker
skar
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
skeri
skæri
önnur persóna
skerir
skærir
þriðja persóna
skeri
skæri
nafnháttur
skera
sagnbót
skorið
lýsingarháttur nútíðar
skerandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
sker
skerðu
skerið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skerðu
skarstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skerirðu
skærirðu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
skorinn
skorin
skorið
þolfall
skorinn
skorna
skorið
þágufall
skornum
skorinni
skornu
eignarfall
skorins
skorinnar
skorins