Yrða

skríða

sagnorð
1
mjaka sér áfram á kviðnum eða á höndum og hnjám (um fólk)
barnið er byrjað að skríða
hann skreið aftur upp í rúm
skríða á fjórum fótum
skríða á hnjánum
2
hreyfa sig áfram (um skordýr, köngulær, eðlur, slöngur ...)
slöngur skriðu um kjarrið
kóngulóin skreið upp vegginn
unginn skríður úr egginu
3
bruna áfram (um skip)
farþegaskipið skreið út fjörðinn
4
(um jökul, jarðveg) mjakast áfram á jöfnum hraða
skriðjökullinn skríður stöðugt fram
þétt þoka skreið niður fjallið
5
ná lágmarksárangri (á prófi); takast e-ð með naumindum
þær skriðu á prófinu með lágmarkseinkunn
flokkurinn rétt skreið yfir 10 prósent í kosningunum
6
skríða + fyrir
skríða fyrir <henni>
niðurlægja sig til að þóknast henni, sýna mikla undirgefni
sumir starfsmenn skríða fyrir forstjóranum
7
skríða + saman
skríða saman
jafna sig eftir veikindi eða annað áfall; taka á sig mynd
hún er öll að skríða saman eftir aðgerðina
ritgerðin mín er alveg að skríða saman
láta til skarar skríða
ráðast í að framkvæma e-ð, grípa til aðgerða; ráðast á e-n/e-ð
lögreglan lét til skarar skríða gegn hryðjuverkamönnunum
við ákváðum að láta til skarar skríða og stofna fyrirtæki
Orðasambönd
Orðasambönd
  • láta skríða til skara
  • láta skríða til skarar
  • láta til skarar skríða
  • skríða á fjórum fótum
  • skríða á hnjákollunum
  • skríða á hnjánum
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
skríð
skreið
önnur persóna
skríður
skreiðst
þriðja persóna
skríður
skreið
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
skríði
skriði
önnur persóna
skríðir
skriðir
þriðja persóna
skríði
skriði
nafnháttur
skríða
sagnbót
skriðið
lýsingarháttur nútíðar
skríðandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
skríð
skríddu
skríðið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skríðurðu
skreiðstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skríðirðu
skriðirðu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
skriðinn
skriðin
skriðið
þolfall
skriðinn
skriðna
skriðið
þágufall
skriðnum
skriðinni
skriðnu
eignarfall
skriðins
skriðinnar
skriðins