skulu
sagnorð
1
táknar vilja, ætlun
ég skal hjálpa þér
ég skal vaska upp
2
táknar hvatningu, tilmæli eða skipun
við skulum flýta okkur
þú skalt reyna að gleyma þessu
öll leiktæki skulu vera traust og örugg
3
(í nafnhætti) táknar fyrirætlun eða óvissa framtíð
hún segist skulu sjá um bókhaldið
hann sagðist skyldu gera við kranann
4
(í viðtengingarhætti þátíðar) táknar óvissu
skyldi hann bregðast henni?
5
táknar þunga áherslu, ákveðni
ég skal leysa krossgátuna!
þeir skulu fara í fangelsi!
6
táknar furðu, hneykslun
að hún skuli ekki skammast sín!
að þið skulið láta svona!
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
skal
—
önnur persóna
skalt
—
þriðja persóna
skal
—
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
skulum
—
önnur persóna
skuluð
—
þriðja persóna
skulu
—
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
skuli
skyldi
önnur persóna
skulir
skyldir
þriðja persóna
skuli
skyldi
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
skulum
skyldum
önnur persóna
skulið
skylduð
þriðja persóna
skuli
skyldu
nafnháttur
skulu
nafnháttur þátíðar
skyldu
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skaltu
—
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skuluði
—
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skulirðu
skyldirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
skuliði
skylduði