Yrða

slag

nafnorð hvorugkyn
1
hljóð í e-u sem slær, einkum klukku
stofuklukkan sló sex slög
2
sláttur hjartans, hjartsláttur
3
líffræði/læknisfræði
heilablóðfall
4
líffræði/læknisfræði
hjartaslag
5
einkum í fleirtölu
kjöt af kviði sláturdýra og upp á miðjar síður
annað slagið
öðru hvoru, við og við
láta slag standa
aðhafast ekkert frekar
→ sjá: slagur nafnorð karlkyn
<hann birtist> á slaginu fimm
... á mínútunni fimm, stundvíslega klukkan fimm
<fundurinn hófst> á slaginu
... á tilsettum tíma
<líta á klukkuna> annað slagið
... af og til
<vélin bilaði> slag í slag
... skipti eftir skipti
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
slag
slagið
þolfall
slag
slagið
þágufall
slagi
slaginu
eignarfall
slags
slagsins