starf
nafnorð hvorugkyn
1
það sem gert er sér til framfæris, vinna
hún er að leita sér að starfi
gegna starfi <ritstjóra>
laust starf
láta af störfum
ráða <fólk> til starfa
vera í fullu starfi
vera í hálfu starfi
2
verk, verkefni
mitt starf var að þvo gluggana
<stofnunin> tekur til starfa <um áramótin>
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Samstæður
- starfsemi
- , verkaskipting
- , starfshættir
- , hlutverk
- , atvinnuhættir
- , kjör
Orðasambönd
- ánægja í starfi
- árangur í starfi
- borgaralegt starf
- brot í opinberu starfi
- brot í starfi
- brottvikning úr starfi
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
starf
starfið
þolfall
starf
starfið
þágufall
starfi
starfinu
eignarfall
starfs
starfsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
störf
störfin
þolfall
störf
störfin
þágufall
störfum
störfunum
eignarfall
starfa
starfanna