tækifæri
nafnorð hvorugkyn tæki-færi
1
hentugt færi eða lag (til e-s, til að gera e-ð), möguleiki
hún fékk loksins tækifæri til að nota hæfileika sína
ég bíð eftir tækifæri til að leiðrétta þennan misskilning
grípa/nota tækifærið
hann notaði tækifærið og þvoði sér um hendurnar
<selja bílinn> við fyrsta tækifæri
<ræða saman> þegar tækifæri gefst/býðst
hann hringir í hana alltaf þegar tækifæri gefst
<við skulum hittast> við tækifæri
2
vissar aðstæður
við höfum hist við ýmis tækifæri
<setja upp hatt> við hátíðleg tækifæri
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
tækifæri
- atvinnutækifæri
- , hentugleiki
- , hentugleikar
- , marktækifæri
Samstæður
- staða
- , kjör
- , aðstæður
- , lífsgæði
- , réttindi
- , forréttindi
Orðasambönd
- ef tækifæri býðst
- glötuð tækifæri
- grípa í toppinn á tækifærinu
- grípa tækifærið
- hátíðleg tækifæri
- láta hvert tækifæri ónotað
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
tækifæri
tækifærið
þolfall
tækifæri
tækifærið
þágufall
tækifæri
tækifærinu
eignarfall
tækifæris
tækifærisins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
tækifæri
tækifærin
þolfall
tækifæri
tækifærin
þágufall
tækifærum
tækifærunum
eignarfall
tækifæra
tækifæranna