Yrða

tilgangur

nafnorð karlkyn til-gangur
það sem ætlast er fyrir með e-u
hún fann loksins tilgang í lífi sínu
í hvaða tilgangi kemur hann hingað?
reglurnar er settar í góðum tilgangi
tilgangurinn með bókinni er skemmtun og fræðsla
fundurinn þjónar þeim tilgangi að menn geti rætt saman
tilgangurinn helgar meðalið
það er sama hvaða aðferð er notuð ef árangur næst
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
tilgangur
Orðasambönd
  • án tilgangs
  • finna tilgang í lífinu
  • í pólitískum tilgangi
  • tilgangur lífsins
  • tilgangurinn helgar meðalið
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
tilgangur
tilgangurinn
þolfall
tilgang
tilganginn
þágufall
tilgangi
tilganginum
eignarfall
tilgangs
tilgangsins