tunna
nafnorð kvenkyn
1
stórt ílát (allt að 100 l) úr tré eða gerviefni, oftast sívalt, einkum undir vökva eða matvæli
síldin var söltuð í tunnur
2
sorptunna
hann fór með ruslið út í tunnu
<sitja, standa> eins og síld í tunnu
... mjög þétt, í einni kös
slá köttinn úr tunnunni
leikur þar sem börn skiptast á að slá með priki í tunnu þangað til hún fer alveg í sundur, tengt öskudegi
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
tunna
tunnan
þolfall
tunnu
tunnuna
þágufall
tunnu
tunnunni
eignarfall
tunnu
tunnunnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
tunnur
tunnurnar
þolfall
tunnur
tunnurnar
þágufall
tunnum
tunnunum
eignarfall
tunna
tunnanna