viðburður
nafnorð karlkyn við-burður
1
e-ð sem ber við, atburður
ýmsir viðburðir voru skipulagðir í tilefni af afmæli bæjarins
fræðsluferðin er árviss viðburður í starfsemi skólans
2
e-ð sem heyrir til undantekninga
það er viðburður að sjá börn hér í hverfinu
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
atburður
Orðasambönd
- fyrir rás viðburðanna
- rás viðburða
- rás viðburðanna
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
viðburður
viðburðurinn
þolfall
viðburð
viðburðinn
þágufall
viðburði
viðburðinum
eignarfall
viðburðar
viðburðarins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
viðburðir
viðburðirnir
þolfall
viðburði
viðburðina
þágufall
viðburðum
viðburðunum
eignarfall
viðburða
viðburðanna