vilja
sagnorð
1
þolfall
hafa vissan vilja, löngun
ég vil ekki fara að sofa!
hún vill ekki búa í borg
við viljum helst sitja á fremsta bekk
þú getur fengið eintak ef þú vilt
<meira en hann> vill vera láta
meira en hann lætur í ljós, gefur til kynna
þessi niðurstaða er ekki jafn örugg og höfundurinn vill vera láta
2
(í viðtengingarhætti) táknar ósk
ég vildi að það færi að snjóa
3
táknar beiðni eða skipun
viltu sópa gólfið?
viltu nokkuð færa þig svolítið?
vilt þú vera svo góð að útskýra þetta
viljið þið þegja!
4
þágufall
eiga visst erindi
hvað viltu mér?
hvað var presturinn að vilja hér?
5
þágufall
vilja <honum> vel
óska honum alls góðs
6
sem háttarsögn í nokkrum samböndum
það vill <fara svo>
það hefur tilhneigingu til að fara þannig
oft vill það fara svo að skoðanir manna breytast
<sumir aflýstu> eins og oft vill verða
... eins og gerist oft
það vildi <honum> til happs að <hann var með eldspýtur>
hann var svo heppinn, það var svo heppilegt að ...
7
sem merkingarsnauður aukasagnliður
vilja halda <þessu> fram
halda þessu fram
ég vil halda því fram að bókin sé meistaraverk
vilja meina <þetta>
hafa þessa skoðun
hann vill meina að bakaðar kartöflur séu óhollar
8
vilja + til
það vill þannig til að <hann er staddur hér>
því er þannig háttað, fyrir tilviljun, að hann er hér
það vildi þannig til að ég var heima þann dag
svo <vel> vildi til
það var svo heppilegt
svo óheppilega vildi til að bíllinn var bilaður
<þetta> vildi <þannig> til
þetta gerðist þannig
veistu hvernig slysið vildi til?
→ sjá: viljandi lýsingarorð/atviksorð
Orðasambönd
Orðasambönd
- hvað ég vildi mér segja
- hvort viltu heldur þiggja lið mitt eða ólið?
- vilja allra götu greiða
- vilja allra vanda leysa
- vilja allt fyrir aðra gera
- vilja allt fyrir alla gera
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
vil
vildi
önnur persóna
vilt
vildir
þriðja persóna
vill
vildi
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
viljum
vildum
önnur persóna
viljið
vilduð
þriðja persóna
vilja
vildu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
vilji
vildi
önnur persóna
viljir
vildir
þriðja persóna
vilji
vildi
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
viljum
vildum
önnur persóna
viljið
vilduð
þriðja persóna
vilji
vildu
nafnháttur
vilja
nafnháttur þátíðar
vildu
sagnbót
viljað
lýsingarháttur nútíðar
viljandi
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
viltu
vildirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
viljiði
vilduði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
viljirðu
vildirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
viljiði
vilduði
Ópersónuleg notkun
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
vill
vildi
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
vilji
vildi