yfirferð
nafnorð kvenkyn yfir-ferð
1
það að fara yfir land eða fljót
<vegurinn> er <erfiður> yfirferðar
2
það að lesa yfir eða fara í gegnum rit eða námsefni
kennarinn hefur lokið við yfirferð prófúrlausnanna
mikil yfirferð er í bóklegu greinunum í vetur
3
það að fara yfir e-ð, athugun
yfirferð á reikningum fyrirtækisins leiddi ýmislegt í ljós
Samstæður og orðasambönd
Samstæður
- endurtalning
- , undirbúningur
Orðasambönd
- illur yfirferðar
- torfær yfirferðar
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
yfirferð
yfirferðin
þolfall
yfirferð
yfirferðina
þágufall
yfirferð
yfirferðinni
eignarfall
yfirferðar
yfirferðarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
yfirferðir
yfirferðirnar
þolfall
yfirferðir
yfirferðirnar
þágufall
yfirferðum
yfirferðunum
eignarfall
yfirferða
yfirferðanna