þeir
fornafn karlkyn,fleirtala
1
(3. persóna) karlar (eða karlkyns verur, t.d. álfar eða fresskettir) sem rætt er um eða vísað til
þeir eru ekki komnir ennþá, bræðurnir
ertu búin að segja þeim fréttirnar? - nei, ég hef ekkert hitt þá í dag
→ sjá: hann fornafn
2
3. persóna; vísar til nafnorðs (eða nafnliðar) í karlkyni fleirtölu
gætirðu fært stólana til hliðar, þeir eru fyrir okkur
rauðu pennarnir eru í efstu skúffunni, viltu gera svo vel að rétta mér þá
→ sjá: hann fornafn
3
ábendingarfornafn; með fallorði í karlkyni fleirtölu eða eitt sér, oft með aukasetningu
þeir sem koma fyrst fá alltaf bestu sætin
heimilið er fyrir þá einstaklinga sem þurfa mesta hjálp
→ sjá: sá fornafn
4
ákvæðisorð með fleirtölunafnorði eða samsettum nafnlið sem vísar til karla
í gær komu þeir bræður heim úr löngu ferðalagi
við þekkjum þá Palla og Jónas ágætlega
Fallbeygingar
Eintala
Fleirtala
nefnifall
hann
þeir
þolfall
hann
þá
þágufall
honum
þeim
eignarfall
hans
þeirra