Yrða

þreyta

nafnorð kvenkyn
það ástand líkamans að vera þreyttur og hvíldarþurfi
hún gat ekki gengið lengra vegna þreytu
hann hefur fundið fyrir andlegri þreytu að undanförnu
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Orðasambönd
  • aðframkominn af þreytu
  • finna fyrir þreytu
  • hníga niður af þreytu
  • leka niður af þreytu
  • úrvinda af þreytu
  • vera að drepast úr þreytu
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
þreyta
þreytan
þolfall
þreytu
þreytuna
þágufall
þreytu
þreytunni
eignarfall
þreytu
þreytunnar