barmur
nafnorð karlkyn
1
brjóst konu
2
brjóststykki eða boðungur á flík
hún er með nælu í barminum
3
brún á íláti, brún á gili eða gjá
við stóðum á barmi gjárinnar
líta í eigin barm
horfast í augu við eigin galla (áður en maður gagnrýnir aðra)
<vera> á barmi <örvæntingar; gjaldþrots>
vera mjög örvæntingarfullur; vera við það að verða gjaldþrota
Samstæður og orðasambönd
Samstæður
- háls
- , mjaðmir
Orðasambönd
- grúfa sig niður í barm sinn
- horfa í barm sér
- krimta í barm sér
- líta inn í sinn eigin barm
- líta í eigin barm
- muldra í barm sér
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
barmur
barmurinn
þolfall
barm
barminn
þágufall
barmi
barminum
eignarfall
barms
barmsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
barmar
barmarnir
þolfall
barma
barmana
þágufall
börmum
börmunum
eignarfall
barma
barmanna