Íslensk nútímamálsorðabók
Ítarleit
- Færslur
- 56.148
- Orðafjöldi í skýringum
- 424.741
- Orðafjöldi í orðasamböndum
- 61.873
- Orðafjöldi í dæmum
- 221.616
napóleonskaka
nafnorð kvenkynBeygingarmynd lítil ferhyrnd kaka, sett saman úr tveimur lögum af smjördeigi með sultu og rjóma á milli og súkkulaði ofan á
bergsteinbrjótur
nafnorð karlkynBeygingarmynd íslensk plöntutegund af steinbrjótsætt; með litlum blómum í breiðum toppum og blaðhvirfingu við jörð; vex í klettum, stundum ræktuð í görðum
blákolla
nafnorð kvenkynBeygingarmynd íslensk plöntutegund af varablómaætt; lágvaxin með litlum, fjólubláum blómum mörgum saman í öxum; vex í vel grónu landi
sjóbleikja
nafnorð kvenkynBeygingarmynd bleikja sem lifir og hrygnir í fersku vatni en gengur lítinn hluta ársins til sjávar til að afla fæðu og vaxa
knall
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd borðskraut með lítilli sprengju sem pappírsræmur og annað skraut kemur út úr þegar hún opnast með hvelli við að kippt er í hana
kapella
nafnorð kvenkynBeygingarmynd bænhús þar sem ekki eru reglulega guðsþjónustur, annaðhvort lítil kirkja eða húsakynni fyrir messugerðir í byggingu sem annars er ætluð óskyldum verkefnum
talía
nafnorð kvenkynBeygingarmynd útbúnaður, blökk, með tveimur hjólum (hið minnsta), taug eða keðju til að lyfta eða draga meiri þyngd með minni krafti
blóðberg
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd lágvaxin og skriðul íslensk plöntutegund af varablómaætt; trékennd og ilmandi með litlum, bleikrauðum blómum í þéttri skipun; vex á melum og víðar
golf
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd útiíþrótt þar sem keppendur reyna að slá lítinn harðan knött í sem fæstum höggum í ákveðinn fjölda holna á þar til gerðum velli
knipla
sagnorðBeygingarmynd búa til blúndu með því að bregða saman þráðum af litlum keflum (kniplpinnum) og festa brugðningana með títuprjónum á mynstur
sortulyng
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd íslensk plöntutegund af lyngætt; sígræn, trékennd og jarðlæg með litlum, hvítum blómum í klösum; vex í móum og kjarri; myndar rauð ber
umfeðmingsgras
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd íslensk plöntutegund af ertublómaætt; með litlum, bláum blómum í löngum klösum og fjöðruðum blöðum með vafþráðum á endunum; vex í graslendi og víðar
eggtvíblaðka
nafnorð kvenkynBeygingarmynd íslensk plöntutegund af brönugrasætt; beinvaxin með tveimur stórum blöðum og litlum, gulgrænum blómum í gisnum klasa efst á blómstöngli; vex í kjarri og graslendi
goðalilja
nafnorð kvenkynBeygingarmynd lágvaxin garðplöntutegund af liljuætt, með löngum, mjóum blöðum og litlum, ilmandi blómum í þéttum klasa í ýmsum litum; mikið notuð í jólaskreytingar; hýjasinta
hýasinta
nafnorð kvenkynBeygingarmynd lágvaxin garðplöntutegund af liljuætt; með löngum, mjóum blöðum og litlum, ilmandi blómum í þéttum klasa í ýmsum litum; mikið notuð í jólaskreytingar; goðalilja
vespa
nafnorð kvenkynBeygingarmynd létt bifhjól með lágri grind og litlum hjólum, sæti ökumanns er ofan á vél og fótpallur þar fyrir framan (afleidd merking af vöruheiti)
koppur
nafnorð karlkynBeygingarmynd kringlótt ílát, oftast úr plasti, sem lítil börn sitja á þegar þau eru vanin af bleiu áður en þau geta sjálf farið á klósett
Dæmi borðið er að minnsta kosti tveggja metra langt það voru að minnsta kosti 500 manns í salnum
lítils háttar
lýsingarorð/atviksorðdálítill, dálítið
markaður
nafnorð karlkynOrðalag svartur markaður