drungi
nafnorð karlkyn
1
þungbúið loft eða andrúmsloft
eftir atburðinn var leiðinlegur drungi yfir heimilinu
það hefur verið drungi og dimmviðri alla vikuna
2
dapurleiki, deyfð í sinni
ég fór út til að reyna að hrista af mér drungann
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
dapurleiki
Samstæður
Orðasambönd
- drungi í lofti
- finna til drunga yfir sér
- það er drungi í lofti
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
drungi
drunginn
þolfall
drunga
drungann
þágufall
drunga
drunganum
eignarfall
drunga
drungans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
drungar
drungarnir
þolfall
drunga
drungana
þágufall
drungum
drungunum
eignarfall
drunga
drunganna