Yrða

ermi

nafnorð kvenkyn
sá hluti flíkur sem umlykur handlegginn
skyrta með stuttum ermum
ermarnar á <jakkanum>
bretta upp ermar/ermarnar
hefjast handa, byrja framkvæmdir
hafa <ýmislegt> uppi í erminni
luma á einhverju
hrista <ræðuna> fram úr erminni
hafa lítið fyrir að semja hana
láta hendur standa fram úr ermum
sýna mikinn dugnað
lofa upp í ermina á sér
lofa meiru en maður getur staðið við
Samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
  • bretta upp ermar
  • bretta upp ermarnar
  • bretta upp ermum
  • láta hendur standa fram úr ermum
  • lofa upp í ermi sína
  • lofa upp í ermina á sér
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
ermi
ermin
þolfall
ermi
ermina
þágufall
ermi
erminni
eignarfall
ermar
ermarinnar